Mikið hefur borið á því að fólk sé að keyra inn á flugbrautina á Siglufirði eða sleppa þar hundum sínum lausum. Flugbrautin er opin lendingarstaður og er því ítrekað að öll óviðkomandi umferð á flugvellinum er bönnuð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjallabyggð.