Bókasafn Fjallabyggðar býður nú uppá ókeypis aðgang að tölvu og neti fyrir gesti safnsins og Upplýsingamiðstöðvar á Siglufirði. Prentun og skönnun er þó samkvæmt verðskrá safnsins.

Þetta mun klárlega nýtast þeim sem ekki hafa aðgang að tölvu, eins og til dæmis erlendum ferðamönnum eða gestum á tjaldsvæðinu.

Frábær ný þjónusta hjá Bókasafni Fjallabyggðar.

 

Mynd með frétt kemur frá Bókasafni Fjallabyggðar.