Klukkan 18:15 í gærkvöldi barst Lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um umferðarslys á Akureyri þar sem ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Þingvallastrætis og Dalsbrautar.
Ökumaður bifreiðarinnar ók af vettvangi án þess að tilkynna slysið og nú leitum við eftir vitnum. Þá vill Lögreglan einnig hvetja ökumanninn til þess að gefa sig fram við lögreglu.
Ef þú hefur upplýsingar um málið biðjum við þig um að hafa samband við 112 sem mun gefa þér samband við lögreglu.