Upplýsingar um veður og færð á Norðurlandi eystra frá Vegagerðinni.
Ófært er á milli Hjalteyrar og Ólafsfjarðar vegna erfiðra akstursskilyrða og versnandi veðurs. Bifreiðar eru fastar í blindbyl á umræddum vegkafla. Fólk er beðið um að vera ekki á ferðinni þarna.
Vegurinn um Dalsmynni eru kominn á óvissustig vegna snjóflóðahættu og þar er þungfært.
Komið er óvissustig á Öxnadalsheiði en hún er farin að þyngjast og gæti lokast með stuttum fyrirvara. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru víða á láglendi.
Þæfingur er á Tröllaskaga og slæmt skyggni sem og óvissustig vegna snjóflóða er þar í gildi.
Við minnum á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is en þar er stöðug uppfærsla.