Hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra hefur verið greint frá því að embættið hafi fengið fjárveitingu til að standa undir einu stöðugildi samfélagslögreglumanns – eða forvarnarfulltrúa, eins og þetta hét áður. Fjárveitingin er til tveggja ára og er liður í aðgerðum stjórnvalda til þess m.a. að vinna gegn ofbeldi meðal barna. Markmið aðgerðarinnar er að auka traust á lögreglu og sýnileika í samfélaginu, leysa félagsleg vandamál og ná til barna og ungmenna í viðkvæmri stöðu.
Í aðgerðinni felst virkt samtal og samvinna lögreglu við þá aðila sem hafa aðkomu að málefnum barna svo sem skóla, frístundastarf og barnaverndar- og félagsþjónustu sveitarfélaga.
Nú hefur verið gengið frá því að lögreglumaðurinn Guðmundur Vignisson tekur að sér verkefni samfélagslögreglumanns og hefur hann þegar hafist handa við verkefnið. Hann mun m.a. verða í samstarfi við forvarnarfulltrúa skóla og sveitarfélaga í umdæminu og aðra samfélagslögreglumenn í öðrum umdæmum.
Forvarnarstarf lögreglu er ekki eins manns verkefni og mun Guðmundur því skipuleggja og taka þátt í forvarnarstarfi annarra lögreglumanna í umdæminu, t.d. með heimsóknum í félagsmiðstöðvar og virkara og nánara samtali við börn og ungmenni.