Nýtt og glæsilegt skilti hefur verið sett upp við Þjóðlagasetrið á Siglufirði. Það voru þeir Örlygur Kristfinnsson og Hrafn Örlygsson sem smíðuðu og settu upp skiltið, skömmu áður en þjóðlagahátíðin hófst. Það var Skiltagerð Norðurlands sem prentaði skiltið sjálft.