Vígsla listaverksins Eddu eftir Beate Stormo fór fram í dag í Eyjafjarðarsveit.
Edda stendur á hóli rétt norðan við Smámunasafnið, hóll sá heitir Hrafnskinnarhóll.  Kirkjukór Grundarsóknar tók lagið og séra Jóhanna blessaði verkið.

Verkið hefur verið í vinnslu um nokkuð langt skeið og hafa margir lagt sitt af mörkum til að það geti orðið að veruleika. Má þar helst nefna Ferðamálafélag Eyjafjarðarsveitar sem átti frumkvæðið á verkefninu, sá um val á listamanni og stóð að fjáröflun verkefnisins.

Íbúar Eyjafjarðarsveitar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta á staðinn og skoða verkið en kjörið er að líta við í hið skemmtilega Smámunasafn Sverris Hermannssonar í leiðinni en bílastæði fyrir Eddu eru einmitt á planinu við safnið.