Kristína Björk Arnórsdóttir hefur verið ráðin persónuverndarfulltrúi HSN og Sjúkrahússins á Akureyri.

Kristína hóf störf 5. maí síðastliðinn og verður með starfsstöð á Hvannavöllum HSN og á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Er þessi staða fyrsta sameiginlega staða HSN og SAk í þessum mikilvæga málaflokki.

Kristína er með BA og meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri og skrifaði hún bæði BA og meistaraverkefnið sitt á sviði heilbrigðisréttar. Kristína hefur starfað sem lögfræðingur á lögmannsstofu þar sem hún hefur áunnið sér inn víðtæka reynslu á ýmsum réttarsviðum.

Kristína hefur einnig starfað sem lögfræðingur á rektorsskrifstofu Háskólans á Akureyri þar sem hún sinnti einnig starfi persónuverndarfulltrúa. Þá hefur Kristína kennt persónuverndarrétt á meistarastigi í Háskólanum á Akureyri og verið með persónuverndarfræðslu og erindi fyrir aðrar stofnanir.

Kristína býr á Akureyri ásamt eiginmanni sínum og fjórum börnum og hefur mikinn áhuga á heilbrigðisrétti, persónuvernd, öryggismenningu og hvernig megi stuðla að auknu öryggi sjúklinga með að tryggja réttaröryggi heilbrigðisstarfsmanna.