Nýr íbúðakjarni að Hafnarstræti 16 á Akureyri var vígður í lok síðustu viku. Þar munu sex einstaklingar búa, þar af fimm sem hefja nú sjálfstæða búsetu í fyrsta sinn. Íbúðarkjarninn er alls 587m². Í húsinu eru sex einstaklingsíbúðir auk starfsmannarýmis. Húsið er að hluta byggt á grunni eldri bygginga frá árinu 1993 en ný viðbygging, sem tengir byggingarhlutana saman, hýsir tvær íbúðir og starfsmannaðstöðu.
Hlynur Már Erlingsson, forstöðumaður búsetuþjónustu fyrir fatlaða, segir húsnæðið hannað með það að markmiði að bæði íbúum og starfsfólki líði sem best. Jafnframt er lögð áhersla á að nýta velferðartækni íbúum og starfsfólki til heilla.
Ævar Guðmundsson, verkefnastjóri nýframkvæmda hjá Akureyrarbæ, segir mikið hafa verið lagt í hönnun íbúðanna með áherslu á bjart og notalegt rými og góða ljós- og hljóðvist.
Hönnun hússins var í höndum Form rágjafar ásamt Eflu, Raftákns og Örugg. Um lokafrágang sá Tréverk, aðrir verktakar voru Ljósgjafinn, Norðurlagnir, Blikk og tækniþjónustan, Málningarfélagið og Garður og hönnun, en innréttingar komu frá Húsheild Hyrnu.