Hilda Hólm Árnadóttir hefur verið ráðin til starfa sem gæðastjóri hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
Hilda hefur B.Sc. gráðu í hjúkrunarfræði, diplómu í stjórnun frá Háskólanum á Akureyri og stundar í dag meistaranám í stjórnun frá sama skóla.
Hilda hefur langa og farsæla reynslu úr heilbrigðisgeiranum sem spannar um tuttugu ár, lengst af sem hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri og á Landsspítalanum. Þá hefur Hilda starfað sem verkefnastjóri rafrænna sjúkraskrárkerfa, sem gæðavörður, aðstoðardeildarstjóri og deildarstjóri á skurðlækningadeild. Einnig hefur Hilda tekið að sér verkefni á vegum Embættis landlæknis ásamt kennslu við Háskólann á Akureyri.