Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hefur ráðið Óskar Þórðarson sem framkvæmdastjóra, en hann hefur áður verið þjálfari yngri flokka félagsins og aðstoðarþjálfari meistaraflokks árin 2008-2010. Hann þekkir því vel til klúbbsins og tekur við af Róberti Haraldssyni sem lætur af störfum.
Óskar hefur einnig verið kennari í Menntaskólanum Tröllaskaga, og er með meistarapróf í þjálfunarfræðum og íþróttalífeðlisfræði frá Noregi.