KF hefur samið við leikmanninn Federico Ignacio Russo Anzola. Hann er frá Venesúela og er varnarsinnaður leikmaður. Hann hefur reynslu úr háskólafótbolta í Bandaríkjunum á árunum 2018-2023. Hann lék í Finnlandi árið 2024 með Sporting Kristina og nú síðast lèk hann á Ítalíu með Città di Castello og einnig Baldaccio, sem er neðri deildar lið.
Hann er fæddur árið 2000 og er því 25 ára gamall. Federico hefur 10 daga til að undirbúa sig fyrir fyrsta leik Íslandsmótsins en KF mætur KFK í Kópavogi 3. maí.
Vefurinn mun vera með umfjöllun um alla leiki KF í sumar með stuðningi frá Siglufjarðar Apóteki eins og undanfarin ár.