Í dag er hinn árlegi nýnemadagur haldinn hátíðlegur í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Allir nemendur mæta í tíma samkvæmt stundaskrá en klukkan 12:40 er verður haldið upp í íþróttahús og eru allir hvattir til að mæta og hafa gaman af.

 Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg en meðal annars verður boðið upp á hinar ýmsu íþróttir í íþróttahúsinu á Ólafsfirði og einnig í sund þar sem hægt er að njóta sín í heitu pottunum.

Einnig verður boðið upp á veitingar, nemendum að kostnaðarlausu. Dagurinn er kjörinn til að kynnast öðrum nemendum og mun örugglega koma mörgum á óvart og efla félagslíf skólans. Framundan er því mjög spennandi föstudagur hjá nemendum og kennurum Menntaskólans á Tröllaskaga.

Heimild: mtr.is / Gísli Hvanndal