Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði fagnar formlegri opnun Súlulyftu með sannkallaðri vetrarhátíð laugardaginn 8. mars kl. 12:00. Miklar framkvæmdir hafa verið á skíðasvæðinu í Skarðsdal undanfarið ár, m.a. reist ný lyfta og komið fyrir töfrateppi sem safnað var fyrir að frumkvæði Anne Marie Jónsdóttur. Skemmtileg dagskrá verður af þessu tilefni fyrir alla fjölskylduna næstkomandi laugardag.
Gönguskíðabraut verður við Súlulyftu, lifandi tónlist og svo eru það foreldrar iðkenda Skíðafélags Siglufjarðar sem standa vaktina í nýja veitingaskálanum og selja veitingar til styrktar barna- og unglingastarfs félagsins.
Aðstandendur skíðasvæðisins hvetja alla skíðaiðkendur, bæði vana og óvana, til að fjölmenna í fjallið og taka þátt í þessum skemmtilega degi.
Þá er svæðið einnig opið í dag, fimmtudaginn 6. mars til kl. 20:00.