Nú er komin þessi glæsilega bryggja við Ólafsfjarðarvatn í Ólafsfirði.  Hér er kominn grunnur að einhverju meira fyrir skapandi fólk, eða bara öruggt skjól fyrir kayakinn.  Bryggjan hefur verið eitt að baráttumálum H-listans í Fjallabyggð til fjölda ára.

Frágangur bryggjunnar til fyrirmyndar og smíðin sjálf vönduð. Þetta verður klárlega vinsæll staður fyrir ferðamenn til að heimsækja og frábært útsýni frá bryggjunni á fallegum degi.

Var komið nafn á bryggjuna? Hvað á bryggjan að heita?