Knattspyrnumaðurinn Nikola Kristinn hefur samið við Dalvík/Reyni og mun spila með liðinu út leiktíðina í 2. deild karla. Hann kemur frá KFA en er uppalinn hjá Þór. Hann hefur einnig leikið með KF en hann lék 18 leiki árið 2024 með Dalvík/Reyni og þekkir því aðstæður vel.
Nikola er fæddur árið 2000 og á 189 KSÍ leiki með þessum liðum og hefur skorað 19 mörk.