Nemendur 7. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar hafa í vetur æft vandaðan upplestur og framkomu og tóku nokkrir þeirra þátt í undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar.  Keppnin var haldin í skólahúsinu við Tjarnarstíg í Ólafsfirði þriðjudaginn 1. apríl síðastliðinn, og var foreldrum og aðstandendum boðið að koma og horfa á. Nemendur lásu bæði ljóð og texta úr skáldsögunni Hetjan eftir Björk Jakobsdóttur.

Þriggja manna dómnefnd valdi tvo aðalmenn og einn varamann sem munu taka þátt í lokakeppni Stóru Upplestrarkeppninnar.

Þeir nemendur sem komust áfram voru Gréta Mjöll Magnúsdóttir og Maja Kulesza. Ásgeir Úlfur Sigurjónsson var valinn sem varamaður.