Tónleikar með íslenskum einsöngslögum fyrir sópran og píanó.
Íslenska náttúran er sterkt afl sem er ekki einungis megnugt að stöðva flugumferð í heiminum og brjóta niður brýr heldur hefur í gegnum aldirnar verið ljóð- og tónskáldum innblástur og getið af sér óumræðanlega dýrmætar perlur.
Hvert lag á efnisskránni er tileinkað ákveðnum hlut eða fyrirbæri sem finnst í eða tengist íslenskri náttúru. Til að auka áhrif tónlistarinnar verða flytjendur umkringdir ljósmyndum af náttúru Íslands. Samspil orða, tónlistar og mynda munu skapa andrúmsloft sem verður einstök upplifun fyrir tónleikagestinn.
Textar laganna samanstanda af nokkrum gömlum þjóðvísum og ljóðum eftir mörg af okkar ástsælustu skáldum: Einar Benediktsson, Tómas Guðmundsson, Jónas Hallgrímsson, Huldu, Höllu Eyjólfsdóttur og Halldór Laxness og fleiri. Lögin eru eftir Inga T. Lárusson Steingrím Thorsteinsson, Sigvalda Kaldalóns, Sigurð Þórðarson, Atla Heimi Sveinsson, Jórunni Viðar, Karl O. Runólfsson og fleiri. Miðaverð 1500 kr.
Rannveig Káradóttir, sópransöngkona.
Birna Hallgrímsdóttir, píanóleikari.
Ljósmyndir eftir Michaël Pankar
Dagskrá:
Reykjahlíðarkirkja við Mývatn
Föstudaginn 15. júlí kl 21:00
Húsavíkurkirkja
Sunnudaginn 17. júlí kl 17:00
Menningarhúsið Berg á Dalvík
Þriðjudaginn 19. júlí kl 20:30
Egilsstaðakirkja
Miðvikudaginn 20. júlí kl 20:30
Ketilhúsið á Akureyri (á Listasumri á Akureyri)
Föstudaginn 22. júlí kl 12:00
Textinn er aðsendur.