Skemmtiferðaskipið National Geographic Explorer var á Siglufirði síðastliðinn sunnudag og stoppaði með 150 farþega í 4 tíma. Skipið er það sjötta sem kemur í júlímánuði til Siglufjarðar, en það hafði áður komið 15. júlí í sumar og einnig tvisvar sumarið 2015. Farþegar National Geographic Explorer fóru á Síldarminjasafnið og horfðu meðal annars á söltunarsýningu þar. Áætlað er að tvö skemmtiferðaskip komi í ágúst til Siglufjarðar.

