Síðasta vika var mjög annasöm hjá Síldarminjasafninu á Siglufirði þegar nær 3.000 gestir heimsóttu Síldarminjasafnið. Til viðbótar við almennan gestagang lögðu um 40 skipulagðir hópar leið sína á safnið og nutu leiðsagna um sýningarnar.

Fjögur skemmtiferðaskip komu til Siglufjarðar á þremur dögum saltaði síldargengið ríflega 700 kíló af síld á planinu við Róaldsbrakka, í átta sýningum.

Að auki fór fram Þjóðlagahátíð í Fjallabyggð með tónleikum í bæði Gránu og Bátahúsinu og víðar.

Síldarminjasafnið greindi fyrst frá þessu.