Hollvinafélag Kvíabekkjarkirkju í Ólafsfirði hafa tilkynnt hver næstu verkefni verða varðandi kirkjuna. Eftir á að klæða turninn og bæta við tveimur gluggum á hliðar hans.  Hækka þarf efsta hluta turnsins og koma fyrir kirkjuklukkunum á sinn stað.

Hollvinafélagið seldi kakó á jólakvöldinu í Ólafsfirði nú um helgina og hefur félagið einnig sent þakkir til þeirra sem stutt hafa Hollvinafélag Kvíabekkjarkirkju síðustu árin.