Viðgerð á þaki Sundhallar Siglufjarðar hófst 30. júní í sumar. Reyndust framkvæmdir vera viðameiri en til stóðu en nú er stefnt á opnun 15. september. Iðnaðarmenn hafa verið á fullu síðustu vikur til að reyna klára verkið.
Vetraropnun Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar er hafin.   Þreksalurinn á Siglufirði verður þó opinn frá 06:30-10:00 og 16:00-19:45 alla virka daga á meðan framkvæmdum stendur.