Menntaskólinn á Tröllaskaga er að hefja þriðja starfsárið sitt. Nemendum hefur fjölgað stöðugt og námsframboð verður fjölbreyttara með fleiri starfsmönnum. Fjarmenntaskólinn og fjarnám eykur líka fjölbreytni náms við skólann. Alls eru um 170 nemendur skráðir nú í upphafi fimmtu annar sem skólinn starfar. Þar af eru 25 fjarnámsnemar og 15 grunnskólanemar. Um 70 nemendur koma frá Siglufirði, um 60 úr Ólafsfirði, 17 frá Dalvík en liðlega 20 frá ýmsum stöðum á landinu.

Félagslíf nemenda var í forgrunni fyrsta skóladaginn. Meira en eitt hundrað nemendur köstuðu sér í hugmyndavinnu um félagslífið eftir að hafa hlýtt á setningarræðu skólameistara. Ásdís Sigurðardóttir stýrir þessu starfi og ætlar að vera nemendum til aðstoðar í vetur við að koma á og viðhalda því tómstunda- og félagsstarfi, auk skemmtana, sem nemendur vilja skipuleggja og taka þátt í.

Heimild: www.mtr.is