Mikið er um að vera hjá Leikfélagi Akureyrar þessa dagana. Um síðustu helgi var jólaævintýrið “Ef ég væri jólasveinn” frumsýnt og skilaði brosandi og sönglandi leikhúsgestum á öllum aldri út í desemberhúmið. Einungis eru fjórar sýningar eftir af leikritinu: sunnudaginn 2. desember kl. 14 og 16 og sunnudaginn 9. desember kl. 14 og 16.
“Leigumorðinginn” hefur fengið afbragðs viðtökur frá leikhúsgestum sem og gagnrýnendum. Einungis er ein sýning eftir, föstudagskvöldið 30. nóvember kl. 20.
Þann 6. desember mun Akureyrarakademían, í samstarfi við Leikfélag Akureyrar og Minjasafn Akureyrar, flytja alþýðufyrirlestur með leikrænu ívafi. Margrét Guðmundsdóttir, sagnfræðingur, mun beina kastljósinu að kjörum alþýðukvenna á Íslandi í byrjun 20. aldar, með aðstoð leikara LA. Aðgangseyrir er aðeins 2.000 krónur og rennur óskiptur til Mæðrastyrksnefndar.
Leikhópurinn Á Senunni mun færa Akureyringum hina heillandi sýningu “Ævintýrið um Augastein” eftir Felix Bergsson laugardaginn 15. desember. Tvær sýningar verða þennan dag kl. 13 og 15. Verkið er ætlað börnum 2ja-10 ára, tekur um eina klukkustund í sýningu og er ekkert hlé.
Allar nánari upplýsingar í síma 4 600 200, www.leikfelag.is og á netfanginu midasala@leikfelag.is.
Miðasalan er opin kl. 13-17 virka daga og er opnuð þremur tímum fyrir sýningu um helgar.