Aldrei verið meiri umferð í júlí mánuði um Vaðlaheiðargöng og í ár. Alls 96.320 ferðir sem er að meðaltali 3.107 ferðir á dag. Umferðin í ár var 16% meiri en í fyrra. Áður hafði júlí umferð verið mest í júlí 2021 þegar hitabylgja var og Íslendingar ferðuðust innanlands vegna covit, nú var umferðin um göngin 2% meiri en 2021. Ef tekin er heildarumferð (göng+skarðið) er aukning núna 7% meiri en 2021 þar sem hlutfallslega fleiri fara skarðið í ár en 2021.
Stök ferð fyrir fólksbíl í göngin er 1990 kr, sé gjaldið greitt á veggjald.is, en ef ekki er greitt þá kemur rukkun í heimabankann fyrir 2540 kr.