33 umsóknir bárust alls um Eyrarrósina 2023 og Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2023 hvaðanæva af landinu. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Hún beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar eru veitt verkefnum sem eru 3 ára eða yngri sem hafa listrænan og samfélagslegan slagkraft og hafa alla burði til að festa sig varanlega í sessi.

Að verðlaununum standa í sameiningu Byggðastofnun, Icelandair og Listahátíð í Reykjavík.

Eyrarrósarhafi 2023

Sú menningarstarfsemi sem Aðalheiður Eysteinsdóttir hefur leitt í Alþýðuhúsinu á Siglufirði í rúman áratug hefur svo sannarlega haft gildi bæði fyrir nærsamfélagið og íslenskt menningarlíf almennt.

Í Alþýðuhúsinu er starfsemi allt árið um kring. Þar er m.a. starfrækt galleríið Kompan, þar sem 7-9 myndlistarsýningar eru settar upp á ári. Áhersla er lögð á fjölbreytta samtímamyndlist.

Mánaðarlegir viðburðir, svokallað Sunnudagskaffi, fara fram í alrými hússins.  Í aðalsal Alþýðuhússins eru svo reglulega settir upp stærri viðburðir eins og listahátíðirnar Leysingar, Frjó og Skafl sem allar spanna fleiri listgreinar.

Á þeim áratug sem húsið hefur verið í rekstri hafa um 200 menningarviðburðir  farið þar fram og um 2000 listamenn og aðrir skapandi einstaklingar hafa komið að starfseminni. Vegleg bók var gefin út á síðasta ári um starfsemina fyrsta áratuginn í húsinu.

Markmið Aðalheiðar með menningarstarfinu í Alþýðuhúsinu hefur frá upphafi verið að gera menningu og listir að hluta af hversdegi bæjarbúa: ,,…að skapa leikvöll listamanna og skapandi fólks til að framkalla list sína og vera vettvangur samræðna og tengsla á milli fólks hvaðanæva að“.

„Sérstaða hússins er heimilislegur blær sem umvefur alla starfsemina, listafólkið og gesti sem þangað sækja. Enginn aðgangseyrir er á viðburði og fólk gengur inn í flæðið sem heimilið er, eins og hluti af heild eða fjölskyldu. Eldhúsið er hjarta hússins eins og á flestum heimilum, en þar koma allir saman til gæðastunda áður en og eftir að listviðburðir eiga sér stað.“

Menningarstarfið í Alþýðuhúsinu á Siglufirði sýnir svo ekki verður um villst, að með eldmóði, úthaldi og seiglu getur einstaklingar haft stórtæk áhrif á samfélag sitt. Í gegnum Alþýðuhúsið streymir ekki bara listafólk úr ýmsum áttum heldur flæða þar í gegn hugmyndir og ferskir vindar sem bæði hreyfa við og næra samfélagið. Gerist það ekki síst þegar heimafólk tekur virkan þátt í viðburðunum.

Og allt gerist þetta vegna þess að atorkusöm listakona tók að sér hús.

Hvatningarverðlaun

Hnoðri í Norðri er listahópur sem hefur það að markmiði að færa öllum börnum í grunnskólum á Norðurlandi metnaðarfullar og skemmtilegar óperusýningar þeim að kostnaðarlausu. Á síðasta ári fór hópurinn í leikferð með sýninguna Ævintýri á aðventunni í hvern einasta grunnskóla á svæðinu. Mörg barnanna heyrðu þá óperusöng í fyrsta sinn.

Hnoðri í Norðri sækir viðfangsefni sín til íslenskra þjóðsagna sem fá nýtt líf í gegnum tónlist, leik og söng.

Verkefnið er einkaframtak atvinnulistafólks sem flest er búsett og starfandi á Norðurlandi eystra. Hópurinn samanstendur af þeim Jennýju Láru Arnórsdóttur (leikstýru og leikmyndahönnuði), Rósu Ásgeirsdóttur (búningahönnuði) og þremur flytjendum – þeim Björk Níelsdóttur (söngkonu), Jóni Þorsteini Reynissyni (söngvara og harmonikkuleikara), Erlu Dóru Vogler (söngkonu) auk Þórunnar Guðmundsdóttur (tónskáldi).

Markmið hópsins næsta starfsár er að frumflytja gleðilega alíslenska öróperu, Skoffín og skringilmenni, fyrir alla 6-10 ára grunnskólanema á Norðaustur- og vesturlandi. Efniviður þeirrar sýningar er sóttur annars vegar í hinn undarlega íslenska sagnaarf sem tengist áramótum og þrettándanum og hins vegar í evrópska óperuhefð.