Forsvarsmenn KF og Dalvíkur hittust tvisvar sinnum til að ræða sameiningu meistaraflokkanna en það var sameiginleg ákvörðun að bíða með það. Þetta segir Óskar Þórðarson framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags Fjallabyggðar í samtali við vefinn.
Félögin stefna hins vegar að því að senda sameiginlegan 2.flokk næsta sumar og einbeita sér að því og gera það vel. Félögin telja það vera skref í rétta átt með tilliti til þess góða samstarfs sem verið hefur í yngri flokkunum og mun vera áfram næsta sumar. Því má búast við sameiginlegum liðum félaganna í 2.-5.flokki ásamt því að 6. flokkur mun hafa örlítið samstarf.
Það er einnig ánægjulegt að segja frá því að það lítur vel út með 3.flokk kvenna fyrir komandi sumar, þannig að sameiningin nær til stúlkna á aldrinum 10-16 ára og 10-19 ára drengja.
Einnig má geta þess að félögin stefna að því að 3.flokkur karla og kvenna frá félögunum fari í æfinga- og keppnisferð erlendis sumarið 2016 en það eru 2000 og 2001 árgangarnir.
Héðinsfjörður.is þakkar Óskari kærlega fyrir þessar upplýsingar.