Alexander Már Þorláksson hefur samið við KF út tímabilið en hann kemur frá Þór. Hann hefur áður leikið fyrir KF og var þá algjör markavél. Hann lék síðast árið 2019 með KF en spilaði Alexander 21 leik í deildinni og skoraði 28 mörk. Fyrra tímabilið hjá KF var árið 2015 og þá var hann líka frábær, spilaði 21 leik og skoraði 18 mörk í deildinni.
Hann átti erfitt tímabil með Þór í fyrra, lék 21 leik í Lengjudeildinni og skoraði aðeins 1 mark. Í ár hefur hann aðeins leikið einn deildarleik í 58. mínútur, en þá fékk hann skiptingu. Það er því stór spurning í hvaða formi leikmaðurinn er núna og hvort einhver meiðsli hafi sett strik í reikninginn í sumar.
KF fagnar því að fá þennan öfluga leikmann í liðið og vonandi nær hann sér á strik út tímabilið.
Alexander er fæddur árið 1995 og hefur leikið 269 leiki í meistaraflokki og skorað 139 mörk. Hann hefur síðustu ár leikið fyrir Þór og Fram, en einnig fyrir ÍA, Kára og Hött.
Velkominn Alexander og gangi þér sem best.