KF og Ægir léku í 2. deild karla í knattspyrnu á Ólafsfjarðarvelli í dag. Fyrir leikinn hafði KF tapað síðustu þremur leikjum og ekki unnið leik síðan 18. júlí. Ægir hafði unnið einn leik af síðustu fimm og bráðvantaði báðum liðum öll þrjú stigin í dag. Fyrri leikur liðanna í sumar fór 1-1 en jafnræði hefur verið í síðustu leikjum liðanna þegar að þau hafa mæst í deildinni.
Það var markahæsti maður KF sem skoraði á 42. mínútu og kom þeim í 1-0 og var það staðan í leikhlé. Strax á sjöttu mínútu síðari hálfleiks komst KF í 2-0 þegar að Alexander Már skoraði sitt annað mark í leiknum og það áttunda í fimmtán leikjum í sumar. Ægir minnkaði muninn á 76. mínútu með marki frá Kristjáni Þorlákssyni, en lokatölur leiksins urðu 2-1 fyrir heimamenn. KF er nú komið í 7. sæti með 18 stig og eru fjórum stigum frá fallsæti.
Alexander Már er 20 ára leikmaður KF, en hann kom að láni frá Fram í vor og hefur sannarlega slegið í gegn.
Leikskýrslu KSÍ má lesa hér.