Oddvitar D-lista Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar og óháðra og K-lista Dalvíkurbyggðar undirrituðu í gærkvöldi málefnasamning fyrir næstu fjögur ár í meirihluta sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar.
Mikil bjartsýni og metnaður fyrir framtíð sveitarfélagsins sveif yfir vötnum við gerð samningsins og spenningur í mannskapnum að bretta upp ermar og hefjast handa. Leit að nýjum sveitarstjóra stendur nú yfir.
Forseti sveitarstjórnar verður Freyr Antonsson (D)
Formaður byggðarráðs verður Helgi Einarsson (K)
Formaður fræðsluráðs verður Jolanta Brandt (K)
Formaður félagsmálaráðs verður Katrín Kristinsdóttir (D)
Formaður íþrótta- og æskulýðsráðs verður Jóhann Már Kristinsson (D)
Formaður veitu- og hafnarráðs verður Haukur Arnar Gunnarsson (K)
Formaður í stjórn Dalbæjar verður Freyr Antonsson (D)
Formaður skipulagsráðs verður Anna Kristín Guðmundsdóttir (D)
Formaður umhverfis- og dreifbýlisráðs verður Gunnar Kristinn Guðmundsson (K)
Breytingar verða gerðar á umhverfisráði og því skipt upp í skipulagsráð og umhverfis- og dreifbýlisráð.
Einnig verður menningarráð endurvakið og verður formaður þess ráðs Lovísa María Sigurgeirsdóttir (K).