Vegna beiðni um að breyta dagsetningu um Mærudagshátíðina á Húsavík var fjölmenningarfulltrúa Norðurþings falið að skoða hvort aðrar dagsetningar til að halda hátíðina kæmu til greina. Var meðal annars leitað eftir afstöðu framkvæmdastjóra Mærudaga og stjórnar Íþróttafélagsins Völsungs, ásamt því að horfa til starfssemi sveitarfélagsins Norðurþings.

Samþykkt hefur verið að Mærudagshátíðin á Húsavík fari fram til reynslu, helgina eftir verslunarmannahelgi, dagana 8.-10. ágúst 2025.

Eftir það verður ákvörðun varðandi framtíðartímasetningu hátíðarinnar endurskoðuð.