Leikfélögin í Fjallabyggð, Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar, auglýsa með stolti lokasýningar á söng- og gamanleiknum „Stöngin inn!“ í leikstjórn Guðmundar Ólafssonar sem einnig samdi verkið.

Um leið þökkum við fyrir frábærar viðtökur en yfir 1.000 leikhúsgestir hafa lagt leið sína í Tjarnarborg og skemmt sér konunglega með okkur.  Þetta mikla ævintýri okkar mun ná hæstu hæðum þann 16. júní er leikhópurinn stígur á stokk á Stóra sviðinu í sjálfu Þjóðleikhúsinu, en „Stöngin inn“ var á dögunum valin „Áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins 2012/2013“.

Síðustu sýningar eru sem hér segir:

13. júní kl. 20:00 – Tjarnarborg Ólafsfirði
Miðapantanir hjá Helenu í síma 845-3216.

16. júní kl. 19:30 – Þjóðleikhúsið Reykjavík
Miðasala á midi.is og hjá Þjóðleikhúsinu í síma 551-1200
(Fáir miðar eftir)
Ekki missa af „Stöngin inn!“, sjáumst í leikhúsinu!!

L.Ó og L.S.

Stöngin inn 3Stöngin inn 4Stöngin inn 1  Stöngin inn 2