Stjórn Lögreglufélags Eyjafjarðar hefur sent frá sér ályktun í kjölfar félagsfundar sem haldinn var fyrir helgi en á fundinum kom fram óánægja lögreglumanna með neikvæða framkomu og lítilsvirðingu viðsemjandans í garð samningsfulltrúa lögreglumanna. Lögreglumenn sem mættu á fundinn vilja ná til sín verkfallsréttinum aftur með öllum tiltækum ráðum. Ályktunin hljóðaði svo: ” Lögreglumenn hafa verið kjarasamningslausir 288 daga og er það með öllu óviðunandi. Á undanförnum árum hafa þær stéttir, sem lögreglumenn bera sig svo oft saman við, fengið áunnar kjarabætur sem hefur leitt til þess að lögreglumenn hafa orðið eftirbátar þessara viðmiðunarstétta. Á þessum tíma hefur álag lögreglumanna aukist og verður ekki unað við það lengur. Þann 30. júní s.l. var kjaradeilu lögreglumanna og viðsemjenda þeirra vísað í gerðadóm og binda lögreglumenn miklar vonir við að niðurstaðan sem er væntanleg 23. september nk. verði lögreglumönnum ásættanleg. Þá ályktar Lögreglufélag Eyjafjarðar einnig að lögreglumenn verði með öllum ráðum að vinna að því að endurheimta verkfallsréttinn sem þeir gáfu eftir á sínum tíma en það er mat lögreglumanna að afsal verkfallsréttarins hafi orðið þeim til mikils skaða í kjarasamningum og eigi stóran þátt í þeirri lítilsvirðandi framkomu sem fulltrúar lögreglumanna fá af hálfu viðsemjanda”.