Hin árlega Lista- og menningarganga á vegum Ferðafélags Siglufjarðar verður miðvikudaginn 11. desember næstkomandi. Vinnustofur listamanna og menningarsetur á Siglufirði verða opin fram eftir kvöldi. Starfsemi listamanna og menningarsetra verður kynnt.

Lagt verður af stað frá Rauðkutorgi kl. 19:30 og endar í Alþýðuhúsinu kl. 21:30 þar sem boðið verður upp á kakó og hressingu.

500 kr. kostar í gönguna.