Í dag og á morgun eru námskeið haldin á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Rímnakveðskapur er í Ráðhússalnum á Siglufirði. Afródans og gömlu dansarnir í Grunnskólanum á Siglufirði. Kennsla í að semja lög í Tónskólanum við Aðalgötuna og einnig barnanámskeið í Þjóðsögukistunni í Tónskólanum. Myndirnar koma frá vef Þjóðlagahátíðarinnar á samfélagsmiðlum af námskeiðum dagsins.

 

Dagskrá 2.-3. júlí:

1. Rímnakveðskapur – Bára Grímsdóttir og Chris Foster. 9.00-12.00 í Ráðhússalnum í Ráðhúsinu, 2. hæð.
2. Afródans – Mamady Sano og Sandra Sano. 9.00-12.00 í Grunnskólanum.
3. Gömlu dansarnir – Atli Freyr Hjaltason og Elizabeth Katrín Mason 14.00-17.00 í Grunnskólanum.
4. Hvernig semur maður góð lög? – Rickard Eklund, Finnland. 14.00-17.00 í Tónskólanum við Aðalgötu.
5. Þjóðsögukistan. Barnanámskeið fyrir 6 – 10 ára – Kennarar: Sigurður Einarsson og Ingibjörg Helgadóttir. 9.00-12.00 í Tónskólanum við Aðalgötu.