Tilkynning frá aðgerðarstjórn Almannavarna á Akureyri.
Kl. 17:42 barst tilkynning til Neyðarlínunnar frá íbúa á Hauganesi, sem taldi sig sjá bát í vandræðum á miðjum Eyjafirði. Tilkynnandi taldi að um hvítan bát væri að ræða og skýrði frá því að báturinn hafi horfið honum sjónum og ekkert sést meir. Neyðarlínan gerði Landhelgisgæslunni viðvart um tilkynninguna. Landhelgisgæslan sendi þyrlu af stað á vettvang og viðbragðsaðilar við Eyjafjörð voru ræstir út.
Kl. 18:13 óskaði Landhelgisgæslan eftir því að aðgerðarstjórn Almannavarna á Akureyri tæki við stjórn leitaraðgerða. Björgunarsveitir á svæðinu og lögreglan sendu 4 dróna, 4 báta og 3 sæþotur til leitar á vettvang. Auk þess sinntu menn með sjónauka eftirliti úr landi. Farið var í smábátahafnir við Eyjafjörð og grennslast fyrir um hvort einhverja báta vantaði. Ekkert fannst við þessa leit eða eftirgrennslan sem benti til þess að bátur hefði farið niður.
Þyrla kom á vettvang kl. 19:15 og leitaði svæðið all ítarlega. Ekkert nýtt hefur komið fram, enn sem komið er, sem bendir til slyss.
Kl. 20:25
Engar vísbendingar hafa fundist um að þarna hafi verið sjófar í vanda og hefur leitaraðgerðum verið hætt.