Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hefur boðið Edu Cruz  eða fullu nafni Fransisco Eduardo Cruz Lemaur nýjan samning. Þessi reynslumikli leikmaður verður því eitt tímabil í viðbót hjá KF, en hann lék 14 leiki í deildinni og einn í bikarnum á síðasta tímabili fyrir KF en var einnig að glíma við meiðsli hluta af tímabilinu. Hann lék áður fyrir Grindavík á árunum 2016-2018. Edu er fæddur árið 1987.

Sito eða Jose Enrique Seoane Vergara hefur fengið félagskipti úr KF yfir í lið á Spáni en hann lék síðari hluta tímabils hjá KF og skoraði 8 mörk í 11 leikjum.  Hann var á stuttum samningi hjá félaginu á síðasta tímabili og kom inn þegar liðinu gekk afar illa að skora mörk og kom sterkur inn í liðið.

Þá hefur Lucas Vieira Thomas skipt yfir í Þór en hann er fæddur árið 2009 og lék síðast með KF/Dalvík í 3. flokki en var einnig gjaldgengur í 4. flokk á síðasta ári.