Leikfélag Fjallabyggðar hefur hafið æfingar á nýju leikverki undir nafninu Birgitta kveður eftir Guðmund Ólafsson. Áætlaðar eru 7 sýningar á leikverkinu og frumsýning 28. október nk. í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði.

Leikritið er nýtt gaman- og sakamálaleikrit og hefur hópurinn verið við æfingar síðan í september.