Leikfélag Dalvíkurbyggðar varð 80 ára í janúar síðastliðnum. Að halda úti félagastarfi í 80 ár í litlu samfélagi er ákveðið afrek. Eins og gengur og gerist í svona félagsskap koma hæðir og lægðir, en ljóst að félagið nú er fullt eldmóðs og hlakkar til 80 ára afmælisársins. Í haust mun Leikfélagið fagna afmælinu sérstaklega með ljósmyndasýningu í Menningarhúsinu Bergi.

 

Núna þessa dagana standa yfir æfingar á verkinu „Sex í sama rúmi og er leikstjórn í höndum Sögu Geirdal Jónsdóttur. Leiksýningin verður frumsýnd 23. febrúar og er uppselt á þá sýningu. Í verkinu eru 9 leikarar, en alls koma tæplega 40 manns að verkinu með einum eða öðrum hætti. Verkið fjallar um þau Philip og Joanna Markham sem eru hamingjusamlega gift. Philip er útgefandi barnabóka og vinnur á neðri hæð íbúðar þeirra hjóna, ásamt félaga sínum Henry Lodge sem er kvæntur en kviklyndur mjög í hjónabandinu. Henry hefur talið Philip á að lána sér íbúðina þetta kvöld til að eiga ástarfund með nýjasta viðhaldinu. Linda, eiginkona Henry veit að hann er henni ótrúr og hún biður Joönnu um að lána sér sömu íbúð til að hitta þar mann sem hún ætlar að sofa hjá til að hefna sín á Henry. Alistair Spenlow er í ástarsambandi við au-pair stúlku Markham hjónanna og þau hafa líka skipulagt ástarfund á staðnum þetta kvöld. Hvað gæti farið úrskeiðis?

Hér má sjá sýningartíma sem eru í sölu:

 

23.02.24 – Föstudagur kl: 20:00 – Frumsýning UPPSELT

25.02.24 – Sunnudagur kl: 20:00

01.03.24 – Föstudagur kl: 20:00

03.03.24 – Sunnudagur kl: 20:00 – Örfá sæti laus

09.03.24 – Laugardagur kl: 20:00

15.03.24 – Föstudagur kl: 20:00

16.03.24 – Laugardagur kl: 20:00 – UPPSELT

22.03.24 – Föstudagur kl: 20:00

23.03.24 – Laugardagur kl: 20:00 – Örfá sæti laus

24.03.24 – Sunnudagur kl 20:00

 

Miðapantanir eru inná heimasíðu félagsins ungodalvik.is. Auk þess er hægt að panta miða í síma 868-9706, en hópapantanir fyrir 10 manns eða fleiri þurfa að berast símleiðis.

Leikfélag Dalvíkurbyggðar býður uppá þá nýbreytni í samstarfi við Kaffihús Gísla, Eirík og Helga að hægt er að panta fiskisúpu, salat og brauð eða leikhúsplatta fyrir sýningu. Er það gert samhliða því þegar pantaðir eru miðar á leikverkið.