Félagar úr Rótarýklúbbi Íslands hafa sett upp tvö glæsileg skilti á skíðastökkpallinn í Ólafsfirði. Merki knattspyrnufélagsins Leifturs og merki Róterý eru nú komin upp á hliðar stökkpallsins.
Það voru þeir Haukur Sigurðsson og Þorsteinn Þorvaldsson sem sáu um að koma skiltunum fyrir ásamt því að hanna festingar og mála þær.  Merkin koma vel út og setja svip á stökkpallinn.
Rótaryklúbbur Ólafsfjarðar hefur séð um að mála stökkpallinn og á veturna er sett á hann jólasería til að lýsa hann upp í svartasta skammdeginu.