Fjallabyggð og Leyningsás ásamt L-7 verktökum gera með sér þríhliða samkomulag um leigu og rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal á Siglufirði.

Í vetur og fram til 1. júní 2025 mun L-7 verktakar sjá um reksturinn á svæðinu.

Miklar framkvæmdir hafa verið undanfarið á svæðinu og er meðal annars komin ný lyfta. Skíðaskálinn hefur þá verið stækkaður. Vetraropnun verður auglýst síðar.

Samþykkt hefur verið að setja troðarann í viðgerð.