Kyrrðarstund verður í Siglufjarðarkirkju föstudaginn 11. apríl, kl. 20.00. Tilefnið er hin mörgu áföll sem dunið hafa á byggðarlagi okkar að undanförnu. Stundin verður í umsjá Sigurðar Ægissonar sóknarprests, Önnu Huldu Júlíusdóttur djákna og Ave Kara Sillaots organista, sem leika mun tónlist á milli stuttra lestra.