Kynningarfundur varðandi framkvæmdir við Vallarbraut á gamla malarvellinum á Siglufirði og hugsanleg kaup á nýjum íbúðum fer fram í Bláa húsinu við Rauðkutorg á Siglufirði, þriðjudaginn 28. mars nk. kl. 16:00.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson sem hefur yfirumsjón með verkinu mun fara yfir þær framkvæmdir sem eru í framundan og tímalínu þeirra. Eins mun hann sýna teikningar af húsum og íbúðum og svara spurningum fundargesta.