Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Tækniþróunarsjóð boða til kynningarfunda um styrki til þróunar- og nýsköpunarverkefna.

Kynningarfundir

  •         Fös. 11. maí: Bláa húsið við Rauðku, Siglufirði, kl. 12:00-13:00
  •         Þri. 15. maí: Hótel KEA Akureyri, kl. 12:00-13:00

Fundurinn er ætlaður forsvarsmönnum fyrirtækja, frumkvöðlum og öðrum áhugasömum um nýsköpun og eflingu atvinnulífs á Eyjafjarðarsvæðinu.

Dagskrá:

  • 1.    Elín Aradóttir kynnir styrki úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar
  • 2.     Guðmundur Óli Hilmisson kynnir styrki á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
  • 3.     Björn Víkingur Ágústsson kynnir styrki á vegum Tækniþróunarsjóðs
  • 4.    Fyrirspurnir og umræður

Súpa framreidd kl. 11:45. Aðgangur ókeypis.

—————————————————————————————

Styrkir til nýsköpunar og þróunar

Vaxtarsamningur Eyjafjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki. Styrkir verða veittir til skilgreindra verkefna sem líkleg eru til að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífs á Eyjafjarðarsvæðinu.

Styrkhæf verkefni eru rannsóknar- þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Verkefni skulu vera unnin í samstarfi að lágmarki þriggja aðila. Umsóknir skulu berast fyrir 1. júní.

Umsóknareyðublað og  frekari upplýsingar, m.a. um styrkhæfan kostnað, forsendur og verklag styrkveitinga, má nálgast á www.afe.is/is/vaxey, eða hjá Elínu Aradóttur  verkefnastjóra í síma 460 5701, elin@afe.is.

Heimild: fjallabyggd.is