Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur boðað fulltrúa allra skólaráða á kynningarfundi um fyrirhugað símafrí í grunnskólum. Markmið fundanna er að ræða áformin og hvetja þátttakendur til að veita umsögn. Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum verða kynnt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda í júní.
Markmiðið með reglugerðinni er að takmarka notkun síma og snjalltækja barna og ungmenna í grunnskólum ásamt því að samræma og setja skýrari reglur um notkunina. Um leið er markmið hennar að styðja við faglegt skólastarf og að búa nemendum náms- og félagsumhverfi sem styður við farsælt nám þeirra og vellíðan.
Áformin fela m.a. í sér:
- að notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla sé óheimil á skólatíma og
- að símar og snjalltæki í eigu eða umsjá skóla skuli eingöngu nota í kennslufræðilegum tilgangi eða vegna stuðningsþarfa nemenda.
Mennta- og barnamálaráðherra hélt nýverið vinnustofu með börnum og ungmennum um símafrí í grunnskólum. Markmið hennar var að kalla eftir sjónarmiðum þeirra um notkun síma og snjalltækja í skóla- og frístundastarfi og móta með ráðherra reglugerð um notkunina. Með kynningarfundunum nú og birtingu í Samráðsgátt verður safnað endurgjöf frá skólasamfélaginu, sveitarfélögum og öllum þeim sem láta þetta mikilvægi málefni sig varða.
