Svokölluð “roadshow” hafa skipað stóran sess í kvikmyndasögunni en lítið hefur farið fyrir þeim undanfarna áratugi og þess vegna þykir sannur heiður að endurvekja hefðina.

Kvikmyndin Þrot í leikstjórn Heimis Bjarnasonar hyggst fara hringinn í kringum landið með forsýningar. Þar sem að myndin er tekin upp á landsbyggðinni þykir kjörið að frumsýna í völdum landshlutum áður en lokaáfangastað er náð með frumsýningu myndarinnar í Reykjavík þann 20. júlí. Myndin verður sýnd á Hvolsvelli, Patreksfirði, Laugarbakka, Dalvík, Raufarhöfn, Vestmannaeyjum og Rifi á Snæfellsnesi.

Sýningin á Dalvík fer fram mánudaginn 11. júlí kl. 20:00 í salnum við hliðina á Kaffihúsi Bakkabræðra, Gísla, Eiríks og Helga. Sýningin á Raufarhöfn er miðvikudaginn 13. júlí í félagsheimilinu Hnitbjörg. Miðinn inn á sýninguna kostar 1500 kr.

Myndin var að mestu leyti tekin á Hvolsvelli og nærliggjandi sveitum. Með helstu hlutverk fara Bára Lind Þórarinsdóttir, Anna Hafþórsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Pálmi Gestsson, Tómas Howser og Guðrún S. Gísladóttir.

Þetta er fyrsta kvikmynd Heimis í fullri lengd en hann skrifaði einnig handritið. Heimir útskrifaðist úr Prague Film School í Tékklandi árið 2016. Skólafélagi hans þaðan, Nicole Goode, er kvikmyndatökumaður myndarinnar.

Myndin hreppti titilinn Besta erlenda myndin á San Diego Movie Awards og hefur verið valin til þátttöku á BARCIFF (Barcelona Indie Filmmakers Festival), Festival of Cinema NYC ásamt New Wave Film Festival í Þýskalandi.

Sagan segir frá grunsamlegt andláti sem skekur smábæjarsamfélagið á Hvolsvelli og líf einmana sendilsins Rögnu er umturnað þegar hálfbróðir hennar, Júlíus, hverfur í kjölfar atviksins. Gömul sár spretta upp og verða að nýjum en þegar hin uppreisnargjarna Arna flækist í atburðarásina er ljóst að eitthvað ógnvægilegt kraumar undir yfirborðinu. Þá reynir á fjölskylduböndin, lífsgildin og tryggðina sem aldrei fyrr enda verður kaldur sannleikurinn þyrnum stráður, jafnvel lífshættulegur.

Trailer: https://vimeo.com/718333051