Það var líf og fjör í húsi Tónlistarskólans á Tröllaskaga á Siglufirði í gær þegar Kvennakórinn Hytturnar hélt sinn fyrsta fund. Góð mæting var á fundinn, þar sem áhugasamar og söngelskar konur komu saman til að leggja grunn að nýjum og spennandi kór.
Kórinn mun æfa í vetur á þriðjudögum kl. 17:00, undir stjórn Eddu Bjarkar Jónsdóttur, sem mun leiða hópinn af krafti og gleði. Henni til halds og trausts verður Eva Karlotta, og saman mynda þær öflugt teymi sem er þekkt fyrir að skapa jákvæða og hvetjandi kórstemningu.
Fyrsta æfing verður þriðjudaginn 23. september kl. 17:00, og eru allar konur sem hafa áhuga á söng, samveru og gleði hjartanlega velkomnar, óháð reynslu, aldri eða bakgrunni. Hytturnar stefna að því að verða vettvangur fyrir samveru, sjálfstyrkingu og tónlistargleði, og það er aldrei of seint að slást í hópinn!
Komdu og syngdu með – við hlökkum til að sjá þig!