Í viðtali við Vikudag segir Kristján Möller: „Já, ég hef ákveðið að gefa kost á mér til áframhaldandi þingstarfa næsta vor fyrir Norðausturkjördæmi,  ég mun bjóða mig fram í fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar,“. Hann fór síðast fyrir framboðslista Samfylkingarinnar í kjördæminu og fékk flokkurinn þá þrjá þingmenn. Aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi verður haldinn á Húsavík á laugardaginn.

Allt viðtalið má lesa hér.

Heimild: www.vikudagur.is