Tilkynning frá Kristjáni er svo hjóðandi:

Ég býð mig fram til vígslubiskups á Hólum vegna þess að ég hef áhuga á að vinna með öllu því góða fólki sem starfar í kirkjunni í umdæminu. Ég legg áherslu á stuðning vígslubiskups við þjónustu kirkjunnar og boðun hennar á hverjum stað, gott samfélag og trúmennsku.

Ég vígðist í Hóladómkirkju 1989 og þjónaði í Vestur Húnavatnssýslu fyrstu níu árin, en hef verið sóknarprestur í Vestmannaeyjum frá 1998. Það er von mín að reynslan af prestsþjónustunni og ýmsum trúnaðarstörfum í þágu kirkjunnar geti nýst vel í embætti vígslubiskups.

Það virkar vel á mig að embætti biskupanna eru í deiglu innan kirkjunnar og það þarf að taka stöðu þeirra og hlutverk til umræðu.

Eiginkona mín er Guðrún Helga Bjarnadóttir, leikskólakennari og leiðbeinandi hjá Blátt áfram.

Frekari upplýsingar um fjölskylduna, feril minn, áhugamál og störf er að finna á heimasíðunni: www.kristjanbjornsson.wordpress.com