Kristinn Kristjánsson skipar 2. sætið á lista H-listans í Fjallabyggð. Hann kynnir sig hér í aðsendum pistli.
Kynning á frambjóðendum H-Listans:
2. sæti Kristinn Kristjánsson Verslunarstjóri.
Ég er besta aldri, fæddur á Siglufirði og ólst þar upp til 8 ára aldurs en þá flutti fjölskyldan á Sauðárkrók, þar sleit ég barnsskónum og eyddi stærstum hluta af unglingsárunum.
Ég hef gert margt skemmtilegt og unnið við ýmislegt um ævina t.d. ferðaþjónustu, kennslu, þjálfun, sölumennsku, tónlist o.fl.
Undanfarin ár hef ég mest sinnt stjórnunarstörfum, síðustu 5 ár sem verslunarstjóri Kjörbúðarinnar á Siglufirði.
Samhliða vinnu hef ég stundað fjarnám með hléum í viðskiptafræði (BS) við Háskólann á Bifröst og auki sótt nám tengt „þjónandi forrystu“.
Áhugamálin mín hafa verið mörg í gegnum tíðina. Ég æfði og spilaði fótbolta og körfubolta, lengst af með Tindastól á Sauðárkróki, síðast bumbu-/körfubolta með Val í Reykjavík.
Tónlist hefur verið stór hluti af mínu lífi, byrjaði í hljómsveit mjög snemma. Ég hef alltaf haft gaman að því að ferðast, bæði hérlendis og erlendis og hef farið víða og kynnst mikið af góðu fólki.
Síðustu ár hefur frítími minn farið að mestu í áhugamál tveggja yngri barnanna minna og annað tengt þeim.
Ég bíð mig fram fyrir H-listan af því mig langar til þess að leggja mitt af mörkunum til þess að byggja hér upp enn betra samfélag með skýrri framtíðarsýn og þátttöku íbúana.
Það krefst heilinda, samvinnu og áræðni þeirra sem að því koma. Málefnin eru mörg og að mörgu að hyggja eins og við flest vitum.
Stefnuskrá H-listans tekur til það sem við ætlum að gera, fáum við kosningu til þess.
Þar má nefna, opnari og gegnsærri stjórnsýslu, atvinnumál, sóknartækfæri í ferðaþjónustu, húsnæðismál t.d.úrræði fyrir eldra fólk. Skipulag og framtíðarstefnu í frístundamálum þarf að endurskoða, ekki síst til að jafna tækifærin.
Verkefnalistinn verður seint tæmandi.
Til þess að okkur gangi sem best í Fjallabyggð er mikilvægt að tryggja þátttöku sem flestra, efla trú okkar á samfélaginu og traust til þeirra sem hér taka við að loknum kosningum.